Lögmenn Suðurlandi · Austurvegi 3 · 800 Selfoss 480 2900 selfoss@log.is
Lögmenn Suðurlandi Fasteignasala

VERÐMAT

Verðmat fasteigna

Ertu að hugsa um að selja fasteign eða vilt einfaldlega fá betri mynd af markaðsvirði eignarinnar þinnar? Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi býður upp á faglegt og áreiðanlegt verðmat á fasteignum á Selfossi, í Reykjavík og víðar á Suðurlandi.

Við byggjum verðmat okkar á ítarlegri greiningu á markaðnum þar sem tekið er mið af nýlegum sölum sambærilegra eigna, staðsetningu, stærð, ástandi og öðrum þáttum sem hafa áhrif á verðmæti fasteignarinnar. Með þessari aðferð færðu raunhæfa mynd af markaðsvirði eignarinnar og góðan grunn fyrir næstu skref.

Verðmat getur verið gagnlegt þegar:

  • þú ert að íhuga að selja fasteign
  • þú vilt fá yfirsýn yfir verðmæti eignarinnar
  • verið er að skoða endurfjármögnun hjá banka
  • skipta þarf eignum vegna uppgjörs eða erfðamála

Ef verðmat er unnið í tengslum við sölu fasteignar hjá Fasteignasölu Lögmanna Suðurlandi er það innifalið í sölulaunum. Óski viðskiptavinur eftir skriflegu verðmati, til dæmis fyrir banka, opinber erindi eða aðra aðila, er það unnið gegn gjaldi samkvæmt gildandi verðskrá.

Verðmat vegna mögulegrar sölu er þér að kostnaðarlausu.

BÓKA FRÍTT VERÐMAT

Fáðu verðmat innan 24 klst.

Fylltu út formið hér að neðan og við höfum samband innan 24 klukkustunda.